Þjónusta
Einkaleyfi
Starfsmenn ARNASON FAKTOR hafa víðtæka þekkingu og reynslu á sviði vísinda og laga, sem gerir fyrirtækinu kleift að bjóða alhliða þjónustu varðandi vernd hugverka á sviði líftækni, lyfjafræði, sameindalíffræði, örverufræði og erfðafræði, ásamt öðrum greinum tengdum lífvísindum og efnafræði.
Þjónusta ARNASON FAKTOR er sérsniðin til þess að ná yfir allar hliðar í málarekstri og hagnýtingu einkaleyfa. Þjónusta fyrirtækisins felur í sér ráðgjöf við undirbúning og innlögn einkaleyfaumsókna, auk fjölþættari ráðgjafar eins og að greina einkaleyfi samkeppnisaðila fyrirtækja sem eru að markaðssetja nýjar vörur og hámarka virði hugverkaverndar.
Tækni og hugbúnaður
Með sérmenntuðum ráðgjöfum kappkostar ARNASON FAKTOR að veita viðskiptavinum sínum sérhæfða þjónustu og ráðgjöf í tengslum við hugverkavernd á vörum og hugmyndum sem tengjast tækni og hugbúnaði. Sérfræðiþekking innan fyrirtækisins spannar alla þætti rafmagnsverkfræði, vélaverkfræði og iðnaðarverkfræði auk hugbúnaðargerðar, rafeindatækni og iðnhönnunar.
Vörumerki og auðkenni fyrirtækja
ARNASON FAKTOR veitir umfangsmikla þjónustu varðandi vörumerki, vörumerkjaþróun og verndun auðkenna fyrirtækja, jafnvel áður en merkið er tilbúið af hendi hönnuðarins. Þjónustan er sérsniðin að þörfum hvers viðskiptavinar með landfræðilega staðsetningu, lagalegar kröfur, starfsemi og markhópa í huga.
Þjónustan sem veitt er nær frá leit, greiningu og tillögum um val á vörumerkjum, til skráninga, leyfissölu og ráðlegginga um verndun vörumerkja um allan heim.
Í samstarfi við sérhæfð fyrirtæki í vöktunarþjónustu býður ARNASON FAKTOR samfellda vöktun og eftirlit með vörumerkjum út um allan heim, með það að markmiði að fylgjast með og varðveita vörumerki fyrirtækja gegn hugsanlegum brotum af ýmsu tagi. Á sama tíma er í gangi er virk starfsemi sem miðar að því að veita ráðgjöf og fræðslu til íslenskra fyrirtækja í samkeppni bæði heima og erlendis.
Lén
Lén eru ein mikilvægasta eign fyrirtækja og skipta miklu fyrir ímynd þeirra. Hvers konar starfsemi á internetinu fer auk þess vaxandi. Eftir því sem íslensk fyrirtæki verða sýnilegri erlendis, eykst þörf fyrir að þau myndi sér stefnu í lénaskráningum og hvernig bregðast skal við þegar þau verða fórnarlömb netsvindls.
ARNASON FAKTOR aðstoðar fyrirtæki við að skrá lén hvar sem er í heiminum og við kaup á lénum sem þegar eru frátekin. Er jafnan boðið upp á netgátt þar sem fyrirtæki fá yfirlit yfir stöðu allra léna sinna sem er mikil hagræðing. Hægt að gera allar breytingar á einum stað, til dæmis að skipta um hýsingu og að uppfæra tengiliði. Allar endurnýjanir eru sjálfvirkar og því er hætta á að lén glatist fyrir mistök lágmörkuð.
Einnig býður ARNASON FAKTOR upp á aðstoð við gerð skráningarstefnu á lénum sem og vöktun vörumerkja á netinu. Vöktun gefur eigendum vörumerkja tækifæri til að fylgjast með hvernig merki þeirra eru notuð á netinu og af hverjum. Þau geta því brugðist fljótt og örugglega við hvers konar misnotkun og svindli á netinu sem er því miður sívaxandi vandamál.