Fyrirtækið
Árnason Faktor varð til sumarið 2006 þegar Faktor einkaleyfastofa og A&P Árnason sameinuðust. Faktor einkaleyfastofa var stofnað árið 1969 af Jóni L. Arnalds hæstaréttarlögmanni og hefur frá upphafi sérhæft sig í vernd hugverkaréttinda og þjónustu við erlend fyrirtæki. A&P Árnason á rætur að rekja aftur til ársins 1985 og hefur verið brautryðjandi í eflingu hugverkverndar í íslensku atvinnulífi.
Hugverk og vernd þeirra eru af mörgum talin grundvöllur fyrir áframhaldandi þróun og hagvexti í heiminum. Árnason Faktor sérhæfir sig í ráðgjöf í tengslum við verndun hugverka fyrir íslensk og erlend fyrirtæki. Starfsfólk okkar hefur áratuga reynslu á þessu sviði og leggjum við mikla áherslu á þjálfun og þekkingaruppbyggingu til hagsbóta fyrir viðskiptavini okkar. Starfsmenn félagsins hafa menntun og reynslu á sviði laga, tækni, raun- og hugvísinda.
Verndun hugverka er í eðli sínu alþjóðleg og því hefur Árnason Faktor byggt upp samband við sérfræðinga á þessu sviði víðs vegar um heiminn. Með alþjóðlegu tengslaneti okkar og þekkingu og reynslu starfsmanna getum við aðstoðað viðskiptavini okkar við uppbyggingu hugverka bæði hérlendis sem erlendis.
Til að fá nánari upplýsingar um þjónustu okkar, þá hikið ekki við að hafa samband. Einnig hvetjum við alla til að heimsækja fréttasíðu okkar, en þar setjum við reglulega inn fréttir af þróun hugverkaverndar erlendis og hér á Íslandi. Einnig er hægt að gerast áskrifandi að fréttatilkynningum okkar og fréttabréfi, Skilaboðum með því að senda tölvupóst á newsletter@arnasonfaktor.is