Bandaríkin eru enn það land sem veitir mestu fé í rannsóknir og þróun á meðal landanna í Efnahags- og framfarastofnuninni (OECD), jafnvel þó framlög hafi lækkað miðað við landsframleiðslu síðan árið 2000. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu frá stofnuninni. Fyrir átta árum voru framlög til rannsókna og þróunar í Bandaríkjunum um 2,05% af landsframleiðslu, en voru árið 2006 um 1,84%.
Þrátt fyrir það veita Bandaríkin enn langmestu fé til rannsókna í heiminum, eða um 35%. Lönd Evrópusambandsins eru næst með 24% og Japan með 14%.
Stór lönd utan OECD, svo sem Kína, Suður-Afríka, Rússland og Brasilía, fjárfesta einnig töluvert í rannsóknum og þróun eða um 18,4% á heimsvísu. Framlag þeirra er því farið að skipta verulegu máli fyrir heildina. Hlutfallsleg aukning í fjárfestingu í þessum geira er jafnframt mest í Kína eða um 18,4% á ári að meðaltali, frá árinu 2001 til 2006.
Opinberi geirinn í OECD ríkjunum ver minna af beinum framlögum til rannsóknar og þjónustu með hverju árinu og kemur langmest fjárfesting til málaflokksins frá einkafyrirtækjum. Hins vegar veita flest OECD ríkin ríflegan skattaafslátt til þeirra sem fjárfesta í rannsóknum og þróun. Spánn er þar fremst í flokki en fyrir hvern Bandaríkjadollar sem einkafyrirtæki ver til rannsókna, fæst 0,46 dollara skattaaflsáttur.
Samkvæmt annari skýrslu sem Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins gaf út um miðjan október kom fram að þrjú bandarísk fyrirtæki veita mestu til rannsókna og þróunar, þau eru Microsoft, General Motors og Pfizer, en á eftir þaim koma Toyota og NOKIA. Að auki eru 20 þeirra 50 fyrirtækja sem fjárfesta mest í rannsóknum frá Bandaríkjunum en 18 frá ESB löndunum og 10 frá Japan. Þá hefur ESB sett sér það markmið að árið 2010 verði 3% of landsframleiðslu aðildarlandanna varið til rannsókna og þróunar.
Úrdráttur úr skýrslu OECD á íslensku er hér.
Skýrsla Framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins er hér.