Nú styttist í að opnað verði fyrir skráningar á .tel lénum. Lénið .tel er hugsað til að koma í staðinn fyrir „hafa samband“ hlekkinn á vefsíðum og er því einkar hentugt fyrir þá sem þurfa að fá símanúmer, netfang eða aðrar upplýsingar um tengiliði á fljótlegan hátt, til dæmis í gegum farsíma. Í stað þess hlaða niður allri vefsíðu fyrirtækisins og finna þar „hafa samband“ hlekkinn, slær notandinn inn nafn fyrirtækis.tel og fær þar á einni síðu helstu upplýsingar um hvernig á að hafa samband. Þannig sparar notandinn bæði tíma og niðurhal, sem getur verið dýrt í farsíma. Fyrirtæki munu þannig geta sett inn heimilisfang, símanúmer, netfang, fax, heimasíðu og margt fleira og gert þær upplýsingar aðgengilegar fyrir alla á fljótlegan hátt. Einstaklingar munu auk þess geta sett hlekki inn á eigin bloggsíður, Facebook, Twitter og fleira því um líkt.
Kemur ekki í stað .mobi
Þó .tel sé einkum hugsað fyrir notendur farsíma, er endingunni ekki ætlað að koma í staðinn fyrir .mobi. Endingin .tel mun einungis birta upplýsingar um tengiliði viðkomandi aðila, en er ekki vefsíða á html-grunni. Hins vegar er .mobi hugsað sem lén fyrir sérhannaðar vefsíður fyrir farsíma með alls konar upplýsingum sem eru á hefðbundnum síðum.
Dæmi um hvernig .tel síða mun líta út er hér
Einföld uppsetning og auðvelt í notkun
Uppsetning á .tel léni mun verða sáraeinföld og verður ekki þörf á vefstjóra til þess að halda við heilli vefsíðu. Þá mun vera í undirbúningi að gera .tel síður gagnvirkar með tækjum eins og Blackberry og iPhone þannig að hægt verði að taka við upplýsingum um tengiliði úr .tel sjálfkrafa inn á viðkomandi tæki. Símanúmer og netföng verða stillt sem hlekkir þannig að hægt verður að hringja eða skrifa tölvupóst með því að smella á það sem við á í stað þess að skrifa. Hægt verður að stilla upplýsingar sem settar eru inn til þess að takamarka aðgang. Til dæmis er hægt að stilla .tel síðu þannig að fjölskyldumeðlimir eða starfsmenn sjái upplýsingar sem viðskiptavinir geta ekki séð.
Þann 3. desember 2008 verður opnað fyrir umsóknir fyrir handhafa vörumerkja. Einstaklingar og fyrirtæki sem ekki eiga vörumerki geta sótt um frá og með 3. febrúar 2009 með því að borga 300 Evra forgangsréttargjald og gildir þá reglan fyrstur kemur fyrstur fær. Þann 23. mars 2009 verður forgangsréttargjald fellt niður og þá er gert ráð fyrir að allir geti skráð .tel fyrir um það bil 30 Evrur á ári.
Nánar um .tel og möguleikana sem þessi ending býður upp á er á telnic.org. Þar má einnig sjá fleiri dæmi um hvernig .tel lítur út og hvernig það mun virka. Við hvetjum einnig þá sem vilja nýta sér forgangsrétt til að skrá sitt vörumerki sem .tel til að hafa samband við okkur.