frontpage hit counter
Mun Evrópusambandsskráning lækka í verði?

Líklegt er að Evrópska vörumerkjaskrifstofan, OHIM lækki á næstunni opinber gjöld á umsóknum um skráningu á vörumerki í Evrópusambandinu. Í lok september síðastliðnum fundaði stjórsýsluráð OHIM með fjárlaganefnd hennar, en sú síðarnefnda hefur lengi beitt sér fyrir því að þessi gjöld verði lækkuð þar sem þau endurpegla á engan hátt raunverulegan kostnað stofnunarinnar.

Nokkur andstaða hefur verið við að lækka þessi gjöld á meðal Einkaleyfastofa Evrópusambandslandanna, þar sem þær óttast að auknar vinsældir ESB skráningarinnar muni fækka landsbundnum vörumerkjaumsóknum í löndunum og minnka þannig tekjur þeirra. Til að koma á móts við þær hefur verið ákveðið að töluverðum fjárhæðum úr sjóðum OHIM verði varið til styrkja Einkaleyfastofur aðildarlandanna. Til að mynda mun OHIM láta helming allra tekna vegna endurnýjana á Evrópusambandskráningum renna til aðildarlandanna og að auki verða allt að 240 milljónir Evra lagðar í sérstakan sjóð til „Verkefna sem tengjast samræmingu, eflingu, vernd, og/eða til að framfylgja vörumerkja- og hönnunarrétt í sambandinu“ eins og það er orðað.

Lækkunin á opinberu gjöldunum verður töluverð, eða úr 1600 evrum í 1000 evrur og mun að öllum líkindum taka gildi í byrjun næsta árs.


Letur