Bandaríska fyrirtækið Verisign tekur reglulega saman ýmsa tölfræði sem varðar netumferð og lénaskráningar. Í september kom út skýrsla þar sem fram kemur staða lénaskráninga á öðrum ársfjórðungi 2008.
Samkvæmt skýrslunni voru um 168 milljón lén skráð á heimsvísu í júní á þessu ári og er það 22% aukning sé miðað við undanfarna 12 mánuði, en um 18% fækkun miðað við fyrsta ársfjórðung þessa árs. Sem fyrr er alþjóðlega lénið .com það lén sem mest er skráð, en tæpur helmingur þeirra léna sem skráð eru í dag, enda á .com.
Í öðru sæti yfir fjölda skráðra léna er .de, .cn er í því þriðja og .net, .uk, .org, .info, .nl og .eu (ESB) eru í 4.-9. Sæti. Ef aðeins er tekið tillit til landsbundinna léna eru þrjú algengustu lénin .de, .cn og .uk og eru þau um 47% af heildarskráningum landsbundinna léna. Mesta aukning í kénaskráningum varð hins vegar í Rússlandi, Póllandi, Brasilíu og Ástralíu.
Mið- og Suður-Ameríka í vexti
Þá kemur fram að mikill vöxtur hafi orðið á netnotkun í Mið- og Suður-Ameríku. Um það bil fjórðungur íbúa álfunnar er nú tengdur netinu, eða um 120 milljónir manna. Flestir notendur eru í Brasilíu, Mexíkó og Argentínu og þar eru einnig flest lén skráð, eða um 1,9 milljón í Brasilíu, 1,8 í Argentínu og 600.000 í Mexíkó. Til samanburðar eru um 22.000 lén skráð á Íslandi. Þá sýna kannanir að notendur í löndunum þremur verja sífellt meiri meiri tíma á netinu eða um 29 klukkustundir á mánuði að meðaltali.