frontpage hit counter
Tölfræði frá WIPO

Alþjóðahugverkastofnunin WIPO gefur árlega út skýrslu með ýmsum upplýsingum og tölfræði um einkaleyfi í heiminum. Fyrir skömmu kom út skýrsla ársins 2008.

Á heimsvísu fjölgar nýjum einkaleyfaumsóknum á árinu 2006 og er áætlað að heildarfjöldi umsókna það ár sé 1,76 milljónir.

Flestar einkaleyfaumsóknir eru lagðar inn í Bandaríkjunum, en það er í fyrsta sinn síðan árið 1963 sem það gerist. Þar á eftir koma Japan, Kína og Suður-Kórea, en Evrópska einkaleyfastofnin EPO er í fimmta sæti.

Í Bandaríkjunum fjölgaði umsóknum um 6,6% á milli ára. Aukning í fjölda nýrra umsókna er þó mest í Asíu. Í Suður-Kóreu fjölgaði umsóknum um 6,7% milli ára og um hvorki meira né minna en 32% í Kína.

Fjöldi umsókna í hverju landi segir þó ekki endilega til um hversu mikil nýsköpun er í því landi, þar sem margar umsóknir t.d. í Kína eru lagðar inn af útlendingum. Kínverjar juku þó hlutdeild sína í nýjum einkaleyfaumsóknum í heiminum árið 2006 í 7,3% úr 1,8% árið áður. Þá má nefna að 76% allra umsókna eru í eigu aðila frá fimm löndum: Japan Bandaríkjunum, Suður-Kóreu, Þýskalandi og Kína.

Áhugsamir geta hlaðið niður skýrslunni í heild sinni hér.


Letur