frontpage hit counter
Varað við fölskum reikningum
Reglulega fréttum við að því að viðskiptavinir okkar séu að fá senda reikninga frá erlendum fyrirtækjum vegna alþjóðlegra skráninga á vörumerkjum þeirra eða einkaleyfum. Yfirleitt eru fyrirtæki beðin um að borga gjald fyrir að skrá hugverk sín í einhvers konar alþjóðlega skrá og stundum jafnvel gefið í skyn að sé slíkt ekki gert, geti skráningin verið felld úr gildi. Setjum við afrit af nýjustu útgáfunum af svona reikningum sem borist hafa viðskiptavinum okkar hér á vefsíðunni, öðrum til upplýsinga.

Við viljum jafnframt ítreka að þau sem skrá alþjóðleg vörumerki eða einkaleyfi ber engin skylda að borga gjöld til að fá merki skráð í einkareknum skrám jafnvel þó annað sé gefið til kynna af þeim sem senda þessa reikninga. Mælum við eindregið með því að þessir reikningar séu ekki greiddir. Viljum við jafnframt hvetja viðskiptavini okkar til að hafa samband við okkur, berist þeim reikningar vegna vörumerkja- eða einkaleyfaskráninga erlendis þar sem öll slík samskipti ættu að berast beint til okkar.

Hægt er að smella á myndirnar hér að neðan til að stækka hana. Nafn viðtakanda og vörumerkið sjálft hafa verið þurrkuð út.

            


 


Letur