frontpage hit counter
Evrópudómstóllinn staðfestir vernd Parmesan

Í máli sem Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins höfðaði gegn þýska ríkinu fyrir Evrópudómstólnum (European Court of Justice) og dæmt var 26. febrúar s.l. er kveðið á um að ekki megi nota heitið PARMESAN fyrir annan ost en þann sem kemur frá héraðinu í kringum Parma á Ítalíu. Framkvæmdastjórn sambandsins höfðaði mál gegn þýska ríkinu árið 2004 eftir að fram höfðu komið kvartanir fleiri aðila.

Parmigiano Reggiano hefur notið verndar sem landfræðileg tilvísun (Protected Designation of Origin) í Evrópusambandinu frá því í júní 1996 en það þýðir að aðeins vörur framleiddar í héraðinu mega nota tilvísunina Parmigiano Reggiano.

Þýska ríkið hélt því fram að Parmesan væri orðið almennt lýsandi heiti (generic) fyrir harðan ost sem ætlaður væri til niðurrifs og að Parmesan væri sérkennandi frábrugðið (distinctive) Parmigiano Reggiano. Niðurstaða dómstólsins var hins vegar sú að það væri bæði hljóðfræðileg og sjónræn líking (phonetic and visual similarity) svo og hugtakanánd (conceptual proximity) milli Parmesan og Parmigiano Reggiano. Dómurinn sagði ennfremur að Þýska ríkinu hafi ekki tekist að sýna fram á að “Parmesan” væri orðið almennt lýsandi.

Dómstóllin sagði  þó einnig að í sumum tilfellum gætu landfræðilegar tilvísanir orðið almennt lýsandi. Sem dæmi um slíkt nefndi dómurinn ostana Camembert og Brie.

Að einu leiti var dómurinn neikvæður fyrir framleiðendur í Parma en það var að það væri málefni einkaaðila, ekki þýskra eftirlitsstofnana að framfylgja dómnum. Einkafyrirtæki sem hafa hagsmuna að gæta þurfa því sjálf að sjá til þess að PARMESAN sé notað með réttum hætti.


Letur