frontpage hit counter
London samningurinn samþykktur - veruleg lækkun kostnaðar við öflun Evrópskra einkaleyfa

Það staðfestist hér að báðar deildir Franska þingsins hafa nú samþykkt London samninginsem okkur hefur orðið tíðrætt um hér á þessari síðu. Samningurinn mun ganga í gildi á fyrri hluta  2008 og lækka þar með kostnað við öflun einkaleyfa í Evrópu um tugi prósenta.  Með Frakklandi hafa nú tíu lönd samþykkt samninginn, sem þýðir að eftir að samningurinn er genginn í gildi þarf ekki að þýða nema kröfur einkaleyfis á þjóðtungur þeirra ríka til að skrá evrópskt einkaleyfi. Ríkin tíu er Mónakó, Þýskaland, Bretland, Sviss, Hollan, Liechtenstein, Slóvenía, Ísland og Lettland. Reiknað er með að Svíþjóð og Danmörk bætist fjótlega í hópinn og vonandi enn fleiri ríki í kjölfarið. 





Letur