Töluvert hefur verið fjallað um London samninginn hér og það að helst hafi staðið á Frökkum að fullgilda hann. Samningurinn mun sem kunnugt er taka gildi eftir fullgildingu Frakka þar sem hann hefur nú þegar verið samþykktur í nægilega mörgum aðildarlöndum utan Frakklands.
Nýjustu fréttir af gangi mála eru þær að þann 24. september var samningurinn samþykktur í ríkisstjórn Frakklands og þann 26. september samþykkti neðri deild Franska þingsins “L'Assemblée nationale” samninginn. Þá er aðeins ein hindrun í vegi fullgildingar, en það er efri deildin “Le Sénat” en málið er á dagskrá þar þann 10. október nk. Hafa ber í huga að kosið er í deildir franska þingsins á mismunandi tíma og staða Sarkosy er mun sterkari í neðri deildinni en í þeirri efri því kosið var í neðri deildina í sumar en í þá efri árið 2004. Sarkozy er mikill stuðningsmaður samningsins og samflokksmenn hans enn líklegri til að styðja frumvarpið en pólitískir andstæðingar sem eru fjölmennari í efri deild, en við sjáum hvað setur.
Það er því fylgst grannt með framgangi London samningsins í Frakklandi. Vonandi verður samningurinn samþykktur í efri deildinni sem mun þýða innleiðingu hans fyrri hluta næsta árs og þá fyrst í Danmörku, Frakklandi, Hollandi, Íslandi (sem hefur fyrir löngu innleitt samninginn) Lettlandi, Liechtenstein, Luxemburg, Mónakó, Sviss, Slóveníu, Bretlandi, Svíþjóð og Þýskalandi. Væntanlega munu fleiri ríki fylgja í kjölfarið þó alls sé óvíst að það geri öll aðildarríki EPO, enda er það ekki skylda.