Áður hefur verið fjallað um London samninginn á þessari vefsíðu (sjá hér og hér), enda er fullgildingu hans í Evrópu beðið með töluverðri eftirvæntingu. Með fullgildingu samningsins er líklegt að kostnaður við að fá einkaleyfi í löndum álfunnar muni minnka allverulega þar sem ekki mun þurfa að þýða einkaleyfisumsókn á önnur tungumál en ensku, frönsku og þýsku.
Helst hefur staðið á Frökkum að fullgilda samninginn, en samningurinn mun taka gildi eftir fullgildingu þeirra þar sem hann hefur nú þegar verið samþykktur í nægilega mörgum aðildarlöndum hans utan Frakklands. Eftir forsetaskiptin þar í landi fyrr á árinu vonuðust einkaleyfasérfræðingar til þess að fullgilding Frakka væri handan við hornið. Því miður var fullgildingin þó ekki á dagskrá þegar franska þingið var kallað saman í júlí sérstaklega til að samþykkja þær breytingar sem stjórn Sarkozy taldi að þoldu enga bið. Þingið er nú í sumarfríi og mun ekki koma saman fyrr en í september. Helsta ástæðan fyrir því að samningurinn hefur ekki verið fullgildur í Frakklandi er sú að hann fjallar um tungumál og takmarkanir á þýðingarskyldu sem er mjög viðkvæmt mál í Frakklandi. Sérfræðingar eru þó sammála um að samningurinn muni mjög líklega verða samþykktur á þinginu fyrr eða síðar. Bæði forseti og forsætisráðherra eru taldir styðja málið, en þingmenn þurfi tíma til að fara yfir hann og rökræða, vegna þess hvers eðlis málið er. Þó ekki hafi tekist að afgreiða samninginn af þinginu fyrir sumarfrí eru menn bjartsýnir á að það verði gert fyrir áramót einkaleyfaumsækjendum til mikilla hagsbóta.