Forsíða
Fyrirtækið
Þjónusta
Fréttir
Fjölskipuð áfrýjunarnefnd Evrópsku einkaleyfastofnunarinnar EPO hefur fellt úrskurð varðandi afleiddar umsóknir
Þann 28. júní sl. úrskurðaði áfrýjunarnefnd
EPO
(e. Enlarged Board of Appeal) í tveimur málum (
G 1/05
og
G 1/06
) er vörðuðu breytingar á afleiddum umsóknum (e. divisional applications). Bæði málin snérust um það hvort mögulegt væri að leiðrétta það ef kemur í ljós að verndarumfang í afleiddri umsókn hefði verið aukið umfram það sem fram kemur í grunnumsókninni. Niðurstaða úrskurðarins er sú að það sé heimilt að takmarka verndarumfangið aftur til þess sem fram kom í grunnumsókninni.
Þetta er í raun staðfesting á núverandi framkvæmd. Áfrýjunarnefndin bendir þó á að það gæti verði þörf á breytingum á lagarammanum þannig að ekki sé hægt að misnota kerfið á þann hátt að afleiddum umsóknum sé haldið gangandi með auknu verndarumfangi í árum saman.
English
Letur
Fréttabréf
Önnur útgáfa
Hafa samband