Landsbundna léniđ fyrir Kína, “.cn”, er nú orđiđ ţriđja mest skráđa landsbunda léniđ í heimi en ađeins landsbundnu lénin í Ţýskalandi (.de) og Bretlandi (.co.uk) eru fleiri. Samkvćmt tölum frá maí, eru nú um 5,3 milljónir vefsíđa međ endinguna .cn eđa fimm sinnum fleiri en í lok árs 2005. Á ţeim tíma var .cn léniđ jafnframt í 6. sćti yfir vinsćlustu lénin en í ţví 13. áriđ áđur, eđa í lok árs 2004. Vöxtur netsins í Kína er ţví umtalsverđur, en í Kína hafa 140 milljónir manna ađgang ađ netinu, ţó takmarkađur sé, en ţađ er annar mesti fjöldi í einu landi í heiminum á eftir Bandaríkjunum.
Yfirvöld í Kína hafa jafnframt lagt sitt af mörkum til ađ flýta skráningum á lénum. Undanfariđ hefur almenningi í Kína veriđ gert kleift ađ skrá lén fyrir ađeins 8 krónur ári og vegna góđra undirtekta hefur tilbođiđ veriđ framlengt til áramóta. Einnig er hćgt ađ skrá lén međ mandarískum stöfum, en ekki bara latneskum, sem hefur aukiđ vinsćldir ţeirra á međal fjöldans til muna. Hins vegar eru litlar takmarkanir og skilyrđi fyrir skráningum og hefur ţađ auk hins lága verđs leitt til ţess ađ fjöldi lénatökumanna og lénasafnara, bćđi kínverskir og alţjóđlegir, hafa safnađ gríđarlegum fjölda af .cn lénum og skiptir ţá engu hvort um lögleg lén eđa ţekkt vörumerki er ađ rćđa. Enn sem komiđ er er ekki einfalt ađ ná tilbaka léni sem hefur veriđ ólöglega skráđ, en eftir ţví sem Kínverjar taka sig á í hugverkaverndarmálum er von til ađ fyrr en síđar nái sú viđleitni einnig til léna.