frontpage hit counter
Brasilía fellir niður einkaleyfavernd á alnæmislyfjum

Landsþing BrasilíuÍ vor ákvað ríkisstjórn Brasilíu að fella niður einkaleyfavernd á alnæmislyfinu Storcrin og geta nú samheitalyfjaframleiðendur framleitt og selt lyf með virka efninu efavirenz, sem er í Storcin, án þess að borga einkaleyfisþóknun. Brasilía er annað landið sem fellir niður einkaleyfi á þessu lyfi, en herforingjastjórnin í Tælandi gerði slíkt hið sama fyrir skömmu. Með þessu ætla stjórnvöld í Brasilíu að reyna að draga úr kostnaði við að veita alnæmissjúklingum meðferð en þar í landi fá um 180.000 sýktir einstaklingar lyf á kostnað ríkisins, þar af fá 75.000 lyf með virka efninu efavirenz. Er talið að með þessu geti yfirvöld í Brasilíu sparað um 30 milljónir dollara á ári.

Merck, sem framleiðir Storcrin, hafði boðist til að gefa 30% afslátt til Brasilíu af þeim 1,59 dollurum sem hver tafla kostar, en Brasilía krafðist þess að fá töfluna á 0,65 dollara eða á sama verði og Tæland fær töflurnar. Merck benti á að hlutfall smitaðra í Tælandi sé miklu hærra en í Brasilíu og því falli Tæland undir flokk landa sem fái töflurnar á kostnaðarverði. Merck bætti ennfremur við að hagkerfi í miklum vexti líkt og Brasilía eigi að taka þátt í kostnaði við þróun og rannsóknir nýrra lyfja með velmegunarríkjunum, en eigi ekki að fá lyf á kostnaðarverði eins og þróunarlönd fá í sumum tilfellum.

Í Tælandi hafa einkaleyfi á tveimur öðrum lyfjum utan Storcrin verið felld úr gildi; alnæmislyfinu Kaletra, framleiddu af Abbott Laboratoies og hjartalyfinu Plavix sem Sanofi-Aventis framleiðir. Brasilía hefur áður hótað að fella niður einkaleyfavernd, meðal annars á Kaletra, til þess að semja um afslætti við lyfjafyrirtæki, þó þarlend stjórnvöld hafi ekki gert alvöru úr hótunum sínum hingað til. Það er íhugunarefni hvar mörkin eigi að liggja á milli þeirra sem fá lyf á kostnaðarverði og þeirra sem þurfa að taka þátt í þróunarkostnaði og því vekur ákvörðun stjórnvalda í Brasilíu upp spurningar. Einkaleyfakerfið er ekki fullkomið, en er þó talið gott tæki til að tryggja nýsköpun og þróun, meðal annars á nýjum lyfjum. Það gæti hagnast Brasilíu og íbúum landsins að minnsta kosti til skemmri tíma að fella úr gildi einkaleyfi á dýrum lyfjum, en spurningin er sú hvernig lyfjafyrirtæki og ríkisstjórnir í ríkjum þeirra bregðast við ef fleiri ríki hætta að virða einkaleyfisvernd og rýmka heimildir til framleiðslu á samheitalyfjum.


Letur