frontpage hit counter
Nafnið á nýjustu uppfinningu Apple, Ipad, þegar til sem skráð vörumerki

Nýjasta uppfinning bandaríska tölvufyrirtækisins Apple fékk nafnið ipad. Uppfinninging er spjaldtölva sem er blanda af lófatölvu og smartsíma. Hinsvegar hefur Fransk – Ítalska fyrirtækið STMicroelectronics, sem sérhæfir sig í kísilflögum, verið með nafnið skráð í níu ár. Ipad er stytting á Integrated Passive and Active Devices og hefur verið notað síðan 2001. Málið mun hugsanlega fara fyrir dóm nema Apple kaupi nafnið af STMicroelectronics . 
    Þetta er ekki í fyrsta skiptið sem Apple lendir í slíkum málum en stutt er síðan Apple tölvfyrirtækið vann mál gegn útgáfufyrirtækinu Apple Corps. Útgáfufyrirtækið Apple Corps sem stofnað var af Bítlunum árið 1968 átti nafnið Apple skráð. Apple Corps átti rétt á því að nota nafnið og lógóið í hvers kyns skapandi vinnu þar sem helstu efni væru tónlist og eða tónlistar sýningar án þess að taka tillit til hvernig hún væri tekin upp eða komið á framfæri. Tölvurisinn Apple vann málið á grundvelli þess að ætlunin var eingöngu að koma tónlistinni á framfæri og hafði ekkert með sköpun tónlistarinnar að gera. Dómarinn í málinu sagði að iTunes væri rafræn verslun og að Apple computer vörumerkið gæfi ekki til kynna að það ætti við sköpunarvinnuna. Fyrirtækin tvö höfðu í áraraðir átt í erjum vegna notkunar á nafninu Apple en það var ekki fyrr en Apple tölvufyrirtækið fór að búa til tæki sem hafði með tónlist að gera að Apple Corps kærði fyrirtækið.
Letur