frontpage hit counter
Breskur ráðherra styður sam-evrópskt einkaleyfi

David Lammy, ráðherra Breta í málefnum nýsköpunar og hugverkaverndar, segist reikna með því að framfarir verði í átt að sam-evrópsku einkaleyfi á næstunni í viðtali í nýjasta hefti IAM-Magazine. Segir Lammy að Svíar sem fara með formennsku í Evrópuráðinu á seinni hluta ársins, vilji að sambandsríkin komist að einhvers konar áfangasamkomulagi í þessum efnum, áður en Spánverjar taka við formennsku í janúar.


Munu Bretar aðstoða við þá vinnu eftir fremsta megni, að sögn Lammy. Fyrirtæki leita nú allra ráða til að draga úr kostnaði og leiðtogar annara Evrópuríkja eru smám saman að gera sér grein fyrir því að það sé jákvætt fyrir nýsköpun að lækka kostnað við einkaleyfaumsóknir.

 

Á þessari síðu hefur reglulega verið fjallað um þróun í átt að sam-evrópsku einkaleyfi, enda myndi það spara uppfinningamönnum gríðarlegar fjárhæðir. Þróunin hefur verið full hæg að margra mati, en þó gefur það tilefni til bjartsýni að Spánverjar munu brátt taka við formennsku í Evrópuráðinu. Spánverjar eru almennt taldir andvígir sam-evrópsku einkaleyfi og því vilja þau ríki sem eru því hlynnt koma málinu af stað fyrir áramót. Við bíðum því og vonum eftir tíðindum fyrir áramót.


Letur