frontpage hit counter
Getur skipt máli að skrá útlit á vöru

Samkvæmt úrskurði Evrópudómstólsins frá því í júní á þessu ári, getur skipt máli að skrá útlit vöru (e. Trade Dress) sem vörumerki. Samkvæmt úrskurðinum braut snyrtivöruframleiðandinn Bellure gegn vörumerkjarétti franska fyrirtækisins L´Oreal, með því að herma eftir ákveðnum sérkennum í útliti og merki þess síðarnefnda. Segir dómstóllinn að Bellure hafi nýtt sér og hagnast á orðspori L´Oreal með ólöglegum hætti. 

Það sem mestu máli skiptir í þessum úrskurði er að hann byggir ekki á að orð- eða myndmerki séu lík, heldur á því að sjálft útlit pakkninganna getur valdið ruglingshættu. Með þessum úrskurði sýnir Evrópudómstóllinn jafnframt að skráning á hönnun merkimiða, lögun og útliti pakkninga í vörumerkjaskrá getur skipt máli við að hindra framleiðslu á eftirlíkingum.

Áfengisframleiðandinn Diageo, hefur nú höfðað mál gegn bresku verslunarkeðjunni Sainsbury´s á sömu forsendum. Þykir Diageo að Sainsbury sé að herma etir útliti einnar vöru sinnar, Pimm´s, með framleiðslu og sölu Pitcher´s í verslunum sínum. Óvenjulegt er að framleiðandi á vöru fari í mál við einn stærsta viðskiptavin sinn eins og er í þessu tilfelli.  



Letur