frontpage hit counter
Ósamsræmi í hugverkalöggjöf hindrar viðskipti á milli ESB og Bandaríkjanna.

Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins birti á dögunum skýrslu þar sem taldar eru upp helstu viðskiptahindranir á milli Bandaríkjanna og landa Evrópsambandsins. Í skýrslunni, sem kemur út árlega, segir að margar hindranir séu smávægilegar og ætti að vera tiltölulega lítið mál að breyta, en aðrar séu stærri og flóknari. Þá er nú þegar búið að vísa nokkrum deilumálum til Alþjóðaviðskiptastofnunarinnar.


Á meðal þess sem talið er til hindrana eru atriði sem sýna glögglega muninn á hugverkalögum í ríkjunum:


         -Í Bandaríkjunum eru lítil fyrirtæki undanskilin því að borga leyfisgjöld fyrir notkun á efni sem er varið með höfundarétti, jafnvel þó Alþjóðaviðskiptastofnunin hafi úrskurðað að þetta sé óheimilt.


         -Útsendingaréttur (e. broadcast rights) í Bandaríkjunum verndar evrópska flytjendur ekki nægilega að mati Framkvæmdastjórnarinnar, þrátt fyrir bandarískir flytjendur njóti víðtækrar verndar í Evrópusambandinu.


         -Erfiðleikar með landfræðileg sérkenni, einkum þar sem margar evrópskar víntegundir sem njóta þessarar verndar víða um heim eru talin hálf-generísk (e. Semi Generic) í Bandaríkjunum og njóta því ekki verndar.


         -Opinberir aðilar í Bandaríkjunum láta oft einkaleyfishafa ekki vita ætli þeir að nota einkaleyfi.


         -Havana Club-úskurðurinn, sem fjallað var um í síðustu Skilaboðum, en samkvæmt honum má hvorki skrá né endurnýja vörumerki sem eru lík eða áþekk vörumerkjum sem hafa verið gerði upptæk af kúbverskum yfirvöldum.


         -Í Bandaríkjunum gildir sú grundvallarregla að sá á rétt á einkaleyfi á uppfinningu sem finnur hana upp fyrst en í Evrópu gildir að sá á réttinn sem fyrstur sækir um einkaleyfi.


         -Ósamræmi í því sem talið er einkaleyfishæft, einkum hvað varðar viðskiptaaðferðir og hugbúnað þar sem skilgreiningar á einkaleyfishæfi eru víðari í Bandaríkjunum.

 

Flest þessara atriða voru þegar alkunna. Samt sem áður sýnir þessi upptalning Framkvæmdastjórnarinnar að hún telur klárlega að hugverkavernd skiptir miklu máli fyrir viðskipti og efnahagsmál. Það er einnig áhugavert að velta fyrir sér hvenig samsvarandi skýrsla frá bandarískum yfirvöldum myndi líta út.     


Letur