frontpage hit counter
Nýr Forstjóri Einkaleyfastofu Bandaríkjanna lofar að stytta einkaleyfaferli um helming

Nýr forstjóri tók við á Einkaleyfastofu Bandaríkjanna í nú í ágúst, þegar David Kappos tók við af Jon Dudas. Kappos var tilnefndur í embætti af Barrack Obama fyrr í sumar, en var áður aðstoðarforstjóri á hugverkaverndarsviði tölvurisans IBM.

Miklar væntingar eru bundar við Kappos einkum þar sem hann kemur frá einkafyrirtæki sem byggir á hugverkavernd og á því að þekkja hvernig umsóknarferli einkaleyfastofunnar snýr að umsækjendum.

Einkaleyfastofa Bandaríkjanna hefur verið gagnrýnd af einkaleyfasérfræðingum fyrir að taka sér full langan tíma í rannsókn á umsóknum. Áætluð meðaltals bið eftir samþykki einkaleyfaumsóknar er nú um 4 ár. Þessi bið er að margra mati janfvel farin að standa hagvexti í Bandaríkjunum fyrir þrifum. Viðskiptaráðherra Bandaríkjanna, Gary Lock, sem er yfirmaður Kappos, hefur jafnframt lýst því yfir að stytta beri umsóknartímann um helming.

Sjálfur hefur Kappos sagt að hann muni einbeita sér að því að leysa vandann innlands. Um stefnubreytingu er að ræða, því forveri Kappos sagði margoft á sinni stjórnartíð að hann teldi vandamál Einkaleyfastofu Bandaríkjanna vera alþjóðleg, rétt eins og viðskipti nútímans eru rædd á alþjóðlegum vettvangi.

Til gamans má geta að í lok árs 2008 voru 1.208.076 einkaleyfaumsóknir í vinnslu hjá Einkaleyfastofu Bandaríkjanna. Í lok ársins 1997 voru umsóknir í vinnslu „aðeins“ 275.295.


Letur