frontpage hit counter
Fá hundruðir milljóna í skaðabætur

Dómstóll í Tævan hefur dæmt fyrrverandi starfsmann tískufyrirtækisins Hermés, til að borga fyrirtækinu 7,5 milljónir dollara í skaðabætur fyrir að hafa selt fjórar falsaðar Birkin töskur. Birkin töskur frá Hermés eru afar eftirsóttar og er algengur biðtími eftir einni slíkri um 2 ár en biðtíminn getur orðið allt að 10 ár, sérstaklega ef taskan er gerð úr leðri af sjaldgæfu eða framandi dýri.

Konan sem um ræðir seldi nokkrar falsaðar Birkin töskur fyrir um 15.000 dollara fyrir nokkrum árum. Samkvæmt vörumerkjalögum í Tævan má dæma þá sem selja falsaðar vörur til að greiða til eiganda vörumerkisins sem brotið er á allt að 1500 sinnum það sem falsaða varan var seld fyrir. Konan slapp þó með skrekkinn, var „aðeins“ dæmd til að greiða 500 sinnum andvirði þess sem hún seldi, eða 15.000x500 = 7,5 milljónir dollara.


Letur