Þann 9. júní síðastliðinn tilkynnti samskiptavefurinn Facebook að frá og með laugardeginum 13. júní verður notendum boðið að skrá sínar eigin persónulegu netslóðir (e. URL). Hingað til hefur notendum verið úthlutaðar tilviljanakenndar slóðir, t.d. id=592995631, en á eftir getur notandi sett sitt eigið nafn í netslóðina.Þannig gæti Arnason Faktor breytt Facebook síðu sinni úr t.d.: http://www.facebook.com/profile.php?id=123456788íhttp://www.facebook.com/arnason.faktor
Áður en breytingarnar verða opnaðar almennum notendum gefst eigendum skráðra vörumerkja kostur á að skrá merki sitt sem Facebook netslóð til að koma í veg fyrir misnotkun óviðkomandi aðila. Fylla þarf út nauðsynlegar upplýsingar á vef Facebook http://www.facebook.com/help/contact.php?show_form=username_rights til að taka frá skráð merki. Eigendur vörumerkja hafa til kl. 04 í fyrramálið að íslenskum tíma til að taka frá sitt merki, en skömmu síðar verður öllum notendum leyft að skrá nafn.
Nánari upplýsingar er að finna á vef Facebook.
http://www.facebook.com/help.php?page=896.
Ef einhverra frekari upplýsinga er óskað eða aðstoðar þá hvetjum við ykkur endilega til að hafa samband. Við vekjum að lokum athygli á því að fresturinn er mjög stuttur, en þessar upplýsingar voru gefnar út og bárust okkur með mjög stuttum fyrirvara.