David Lammy, ráðherra Breta í málefnum nýsköpunar og hugverkaverndar, segist reikna með því að framfarir verði í átt að sam-evrópsku einkaleyfi á næstunni í viðtali í nýjasta hefti IAM-Magazine. Segir Lammy að Svíar sem fara með formennsku í Evrópuráðinu á seinni hluta ársins, vilji að sambandsríkin komist að einhvers konar áfangasamkomulagi í þessum efnum, áður en Spánverjar taka við formennsku í janúar.
Samkvæmt úrskurði Evrópudómstólsins frá því í júní á þessu ári, getur skipt máli að skrá útlit vöru (e. Trade Dress) sem vörumerki. Samkvæmt úrskurðinum braut snyrtivöruframleiðandinn Bellure gegn vörumerkjarétti franska fyrirtækisins L´Oreal, með því að herma eftir ákveðnum sérkennum í útliti og merki þess síðarnefnda. Segir dómstóllinn að Bellure hafi nýtt sér og hagnast á orðspori L´Oreal með ólöglegum hætti.
Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins birti á dögunum skýrslu þar sem taldar eru upp helstu viðskiptahindranir á milli Bandaríkjanna og landa Evrópsambandsins. Í skýrslunni, sem kemur út árlega, segir að margar hindranir séu smávægilegar og ætti að vera tiltölulega lítið mál að breyta, en aðrar séu stærri og flóknari. Þá er nú þegar búið að vísa nokkrum deilumálum til Alþjóðaviðskiptastofnunarinnar.
Nýr forstjóri tók við á Einkaleyfastofu Bandaríkjanna í nú í ágúst, þegar David Kappos tók við af Jon Dudas. Kappos var tilnefndur í embætti af Barrack Obama fyrr í sumar, en var áður aðstoðarforstjóri á hugverkaverndarsviði tölvurisans IBM.
Miklar væntingar eru bundar við Kappos einkum þar sem hann kemur frá einkafyrirtæki sem byggir á hugverkavernd og á því að þekkja hvernig umsóknarferli einkaleyfastofunnar snýr að umsækjendum.